Vetrarbrautin okkar er þyrilvetrarbraut og það eru 100-400 milljarða stjörnur í henni. Hún er skífulaga af gerð SBbc. Vetrarbrautin er risastór en mest af henni er gas, gasið takmarkar skyggni þannig að við sjáum aðeins lítinn hluta af heildarfjölda stjarna. Miðja vetrarbrautinnar kallast miðbungan og dregur hún nafn sitt af lögun skífunnar sem belgist út í miðjunni. Ekki er mikið af gasi í miðbungunni sem gefur til kynna að ekki sé mikil, eða eitthver stjörnumyndun þar. Hægt er að sjá vetrarbrautina frá Íslandi ef maður fer burt frá borgar- og bæjarljósi á heiðskírri, tunglskinslausri nóttu. Vísindamenn hafa reiknað og talið er að vetrarbrautin okkar muni lenda í árekstri við andrómedru eftir 4 milljarða ára.